Norrænn tengslaviðburður fyrir Digital Europe

/

Skráning hafin í norrænan tengslaviðburð fyrir Digtial Europe

Norrænn netviðburður fyrir væntanleg Digital Europe köll fer fram 16. apríl 2026 kl. 11:00–13:00 (íslenskur tími) og er opinn íslenskum fyrirtækjum, stofnunum og öðrum áhugasömum. Markmiðið er að tengja saman samstarfsaðila á Norðurlöndum og styðja þátttakendur í undirbúningi umsókna fyrir Digital Europe–verkefni á árunum 2026–2027.


Hvað er Digital Europe?

Digital Europe Programme (DEP) er fjármögnunaráætlun ESB sem styður innleiðingu stafrænnar tækni og þróun sameiginlegra evrópskra stafrænnar innviða. Áætlunin einblínir m.a. á gervigreind, örugg gagnakerfi, stafræna færni og stafrænar umbreytingar í atvinnulífi og samfélagi. Hér er því kjörinn vettvangur fyrir íslenska aðila sem vilja taka þátt í öflugum alþjóðlegum samstarfsverkefnum.


Áherslur viðburðarins

Viðburðurinn hefst með stuttri yfirlitskynningu um næstu DEP köll samkvæmt vinnuáætlun 2026–2027, en að því loknu fara fram þrír samhliða umræðuhópar:



  • AI & Data
  • Health
  • Education & Skills


Í umræðuhópunum geta þátttakendur kynnt verkefnahugmyndir eða sérfræðikunnáttu í 3–10 mínútna erindum.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki, stofnanir, háskóla og sveitarfélög til að mynda ný samstarfstengsl, fá innsýn í það sem er framundan í DEP og hefja undirbúning að samstarfsverkefnum.

Viðburðurinn er skipulagður í samvinnu Rannís og systurstofnana á Norðurlöndum.

 

Skráning er hafin – tryggðu þér þátttöku

Rannís hvetur alla íslenska aðila sem eru að huga að innleiðingu stafrænna launsa og nýsköpunar til að skrá sig og taka virkan þátt.


Nánari upplýsingar og skráning: www.rannis.is/dep2026


IN OTHER NEWS

9. apríl 2026
Women in AI: Building a more inclusive future
31. mars 2026
Registration Open for Nordic Matchmaking Event for Digital Europe
31. mars 2026
Celebrating Inclusion and Innovation at STEMming
SEE MORE