þjónusta

þjónusta edih


Samfélagið treystir stöðugt meira á stafrænar lausnir. Markmið EDIH verkefnisins er að ná stafrænum markmiðum stefnu Stafræns áratugar fyrir 2030. Áherslan er á að byggja upp getu og nýta háþróaða tækni í lykilgeirum til að flýta fyrir stafrænni umbreytingu innan aðildarríkja Evrópusambandsins. Verkefnið styður á skilvirkan hátt við stafræna getu og umbreytingu lítilla og meðalstórra fyrirtækja og opinberra stofnana um allt Evrópusambandið. 


Staðbundin miðstöð tryggir að lítil og meðalstór fyrirtæki og opinberar stofnanir njóti góðs af stafrænum vaxtartækifærum. Þetta framtak er hluti af víðtækari áætlunum Evrópusambandsins eins og Digital Europe Program og Horizon Europe. Áætlunum sem miða að því að styrkja samkeppnishæfni Evrópu á heimsvísu með stafrænni getu sem og að flýta fyrir stafrænni umbreytingu hagkerfa og samfélaga fyrir 2030.

ÞJÓNUSTA

Þróið og prófið

EDIH veitir fyrirtækjum tækifæri til að gera tilraunir með háþróaða tækni áður en þau leggja í miklar fjárfestingar og draga með því úr áhættu og hvetja til nýsköpunar. Áherslan er á stafrænnar umbreytingar á sviði gervigreindar, ofurtölva og tölvuöryggi.

ÞJÓNUSTA

Stafrænt Hæfnismat

Með stafrænu hæfnismati er metið hversu reiðubúið fyrirtæki eða stofnun er fyrir stafræna umbreytingu. Hugmyndin er að skilja hvar þau standa í hinu stafræna umhverfi.

ÞJÓNUSTA

Netöryggi hæfnismat

Með aukinni stafrænni tækni eykst mikilvægi netöryggis. Fyrirtæki, stjórnvöld og einstaklingar standa frammi fyrir hugsanlegri hættu netógna sem geta leitt til fjárhagslegs taps, mannorðsskaða og jafnvel stefnt persónulegu öryggi í hættu.

ÞJÓNUSTA

Fjármögnun

Digital Europe er styrkjaáætlun sem leggur áherslu á að auka aðgengi að stafrænni tækni til fyrirtækja, einstaklinga og opinbera aðila. Rannís hefur umsjón með styrkáætluninni í samvinnu við háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Hvernig virkar þetta?

Þróið og prófið

EDIH veitir fyrirtækjum tækifæri til að gera tilraunir með háþróaða tækni áður en þau leggja í stórar fjárfestingar og draga með því úr áhættu og hvetja til nýsköpunar. Áherslan er á stafrænnar umbreytingar á sviði gervigreindar, ofurtölva og tölvuöryggi.



Menntun og fræðsla

Menntun og fræðsla til að byggja upp getu og nýtingu háþróaðrar tækni í gervigreind, afkastamikilli tölvuvinnslu og netöryggi fyrir bæði opinbera- og einkageirann. Markmiðið er að flýta fyrir stafrænni umbreytingu innan aðildarríkja Evrópusambandsins.

 



Fjármögnun

Að tryggja fjárfestingu og fá aðgang að fjármögnun eru lífsnauðsynleg fyrir vöxt allra lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Rannís veitir alhliða stuðning við að finna fjármögnun fyrir stafræn verkefni.




Tengslanet

Tengslanet miðstöðvarinnar
stuðlar að öflugu vistkerfi nýsköpunar og frumkvöðlastarfs bæði innlendis og erlendis.

Samvinna og tengslanet milli nemenda, vísindamanna, frumkvöðla og leiðtoga iðnaðarins.



Share by: